Velkomin í Gesthús Selfossi
Gesthús Selfossi er hlýlegur gististaður, í hjarta Selfoss, staðsettur við Engjaveg 56. Svæðið er umlukið háum trjám sem veita einstaklega gott skjól og friðsælt andrúmsloft. Á svæðinu eru leiksvæði fyrir börn og tveir heitir pottar, staðsettir við þjónustumiðstöðina. Pottarnir eru opnir á opnunartíma þjónustumiðstöðvarinnar, alla daga þegar veður leyfir. Hvernig hljómar að slaka á í heitum potti á meðan norðurljósin dansa fyrir ofan þig?
Við bjóðum upp á tvennskonar gistingu, tvö glæsileg sumarhús og 22 herbergi í smáhýsum, ásamt því að vera með frábært tjaldsvæði.
Smáhýsin okkar kúra í skóginum og eru í hverju að finna uppbúin rúm, eldunaraðstöðu, ísskáp og baðherbergi með sturtu. Fyrir þá sem eru að leita að aðeins meiri lúxus höfum við tvö tveggja herbergja sumarhús til leigu, hvert með fullbúnu eldhúsi, stofu og fallegri verönd með heitum potti sem gestir hafa til einkanota.
Að auki höfum við rúmgott tjaldsvæði og glæsilega tjaldmiðstöð þar sem gestir hafa aðgang að snyrtiaðstöðu, sturtum, eldunaraðstöðu og matsal. Norðan við tjaldmiðstöðina er svo svæði þar sem hægt er að losa úr ferðasalernum og vatnstönkum sem og slanga til að fylla á neysluvatn.
Gesthús Selfoss er fullkomin staður fyrir þá sem vilja kanna Suðurlandið þar sem stutt er í allar helstu náttúruperlur og afþreyingu.
Gistingin
Smáhýsi
Sumarhús
Tjaldsvæði
Veitingar
Morgunverðar hlaðborð er í boði frá maí – sept. Við bjóðum ykkur upp á gómsætan morgunverð þar sem vöfflurnar eru alltaf vinsælar. Hjá okkur er að auki hægt að versla gos og bjór. Þjónustumiðstöðin er opin til kl. 22.00 á sumrin og til kl. 19.00 á veturna.
Ertu að ferðast með hóp? Við bjóðum upp á hádegis- og/eða kvöldverðaseðil fyrir hópa. Vinsamlega athugaðu að það þarf að panta fyrirfram.
Nálæg afþreying og áhugaverðir staðir
Gesthús Selfoss er frábær staður fyrir ferðalanga enda staðsettur í fallegum bæ og gríðarlega margt að skoða í nágrenninu.
Kynntu þér okkar uppáhalds staði og afþreyingu sem er í boði á Suðurlandinu.
Veður og
Norðurljósaspá
Góður undirbúningur er lykill að góðu ferðalagi.
Kynntu þér færð á vegum áður en þú leggur af stað í ferðalagið.
Og ekki missa af því að sjá litríku norðurljósin.
Umsagnir
Staðsetning
Heimilisfang
Engjavegur 56,
800 Selfoss
Heyrðu í okkur
(+354) 482 3585
Sendu tölvupóst
gesthus@gesthus.is